SKILMÁLAR
Skilmálar Háfit ehf.
Fyrir rafrænu upplýsingaveituna Háfit
Með notkun vefsvæðisins www.hafit.is undirgengst þú sem notandi þessar reglur og skilmála.
1. gr. Eigandi síðunnar
Vefsvæðið www.hafit.is (hér eftir „vefsíðan“ og vefkerfið Háfit (hér eftir „vefkerfið“) er eign Háfit ehf., kt. 520713-0850 (hér eftir „félagið“) og fer það með stjórn vefsíðunnar og vefkerfisins.
2. gr. Lög og reglur
Um notkun á vefkerfinu gilda íslensk lög og stjórnvaldsfyrirmæli eftir því sem við á. Rísi ágreiningur um notkun vefkerfisins eða efni skilmála þessara skal reka dómsmál þess efnis fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
3. gr. Höfundarréttur og vörumerki
Vörumerki og auðkenni sem sjást á vefsvæðinu eru eign félagsins. Notendum er með öllu óheimilt að nota merki félagsins án skriflegrar heimildar félagsins. Allt efni á vefsvæðinu nýtur höfundaréttarverndar eða eftir atvikum einkaréttarverndar að því marki sem það er ekki undanskilið slíkri vernd með lögum. Notendum vefkerfisins er með öllu óheimilt að breyta, birta, endurnýta, afrita, gefa út, selja eða veita aðgang að því efni sem finna má á vefsíðunni eða hagnýta sér það með nokkrum öðrum sambærilegum hætti.
Til efnis á vefsvæðinu teljast m.a skrár, töflur, eyðublöð, gagnagrunnar og hvaðeina annað sem finna má á vefsvæðinu sbr. m.a. 50.gr. Höfundalaga nr. 73/1973.
4. gr. Engin ábyrgð tekin
Allar upplýsingar sem látnar eru í té á vefsíðunni „eins og þær koma fyrir“ án nokkurrar ábyrgðar, beinnar eða óbeinnar. Háfit ehf. ber ekki undir neinum kringumstæðum ábyrgð á nákvæmni eða áreiðanleika þeirra upplýsinga sem finna má á vefsíðunni hvort sem þær frá félaginu sjálfu eða öðrum. Háfit ehf. ber ekki undir neinum kringumstæðum ábyrgð á tapi eða skaða sem rekja má til þess að notandi byggir á upplýsingum sem aflað er á þessari vefsíðu. Það er á ábyrgð notanda að meta nákvæmni, heildstæðni eða notagildi hvers kyns upplýsinga sem fást á vefsíðunni.
5. gr. Fyrirvari um bótaábyrgð
Háfit ehf. undanþiggur sig sérstaklega hvers kyns bótaábyrgð (hvort sem hún er innan samninga eða utan, hlutlæg bótaábyrgð eða annars konar ábyrgð) á hvers kyns beinu, óbeinu, tilfallandi, afleiddu, eða sérstöku tjóni sem komið er til eða á einhvern hátt tengt notkun vefsíðunnar. Háfit ehf. ber ekki í neinum tilvikum ábyrgð á tjóni sem rekja má til þess að ekki er hægt að nota vefinn, í skemmri eða lengri tíma.
Félagið ber ekki ábyrgð á röskunum sem kunna að verða á virkni vefsíðunnar vegna óviðráðanlegra atvika (force majeur) svo sem náttúruhamfara, styrjalda eða verkfalla.
6. gr. Tengdar vefsíður
Á vefsíðunni og innan vefkerfisins kunna að vera tenglar á aðra vefi sem tengjast virkni kerfisins á einhvern hátt. Félagið rekur ekki þessar vefsíður né ræður efni þeirra. Félagið ábyrgist ekki á neinn hátt þær upplýsingar eða það efni sem finna má á þessum vefsíðum, frammistöðu þeirra eða afköst eða nokkuð tjón sem þú eða aðrir kunna að verða fyrir vegna notkunar þeirra.
7. gr. Tölvuvírusar o.fl.
Félagið ábyrgist ekki að vefkerfið eða vefir sem það vísar til s.s með tenglum, séu algjörlega lausir við tölvuvírusa eða annað sem reynst getur skaðlegt tölvum eða hugbúnaði. Notandi ber sjálfur ábyrgð á að fyrirbyggja mögulegt tap sem hlotist getur af slíku með nauðsynlegum vörnum t.d vírusvarnarforritum.
8. gr. Söfnun og vinnsla persónuupplýsinga
Notandi viðurkennir og samþykkir að með því að skrá sig í vefkerfið láti hann félaginu í té þær persónuupplýsingar sem í skráningarforminu felast. Notandi samþykkir jafnframt að félagið hafi eftirlit og haldi skrá yfir notkun notanda á vefsíðunni. Með notkun á vefsíðunni samþykkir notandi jafnframt vinnslu slíkra persónuupplýsinga.
Félagið áskilur sér rétt til að vinna úr gögnum um notkun notanda á vefkerfinu í því skyni að bjóða honum nýja þjónustu, nýjar áskriftarleiðir eða tilboð honum til hagsbóta.
Á meðan samningssamband varir milli notanda og Háfit ehf. skuldbindur félagið sig til að halda utan um og varðveita hvers konar persónuleg gögn og upplýsingar sem verða til við notkun kerfisins og finna má á viðkomandi aðgangi.
Vefsíður og vefkerfi félagsins nýta svokallaðar vafrakökur (e. cookies). Vafrakökur eru nauðsynlegar t.d. til þess að geta auðkennt notendur, t.d. í vefverslun eða í vefkerfi félagsins. Með notkun vefsíðna og vefkerfa Háfit ehf. veitir notandi samþykki sitt fyrir notkun vafrakakna.
Með því að taka þátt í leikjum Háfit að þá heimilar notandinn að Háfit nýti tölvupóst viðkomandi til markaðssetningar.
9. gr. Breytingar á notendareglum og skilmálum
Félagið áskilur sér rétt til að endurskoða og breyta skilmálum þessum hvenær sem er og án fyrirvara. Endurskoðaðir skilmálar munu birtast á vefsíðunni og ber notanda að kynna sér þá reglulega. Notkun vefsíðunnar jafngildir samþykki þeirra skilmála sem í gildi eru hverju sinni.
Breytingar á skilmálum þessum skulu gerðar skriflega. Verði lögum og/eða reglum breytt er varða starfsemi Háfit ehf. skulu skilmálar þessir breytast sjálfkrafa til samræmis við slíkar breytingar, enda hafi þær veruleg áhrif á starfsemi Háfit ehf.
10. gr. Brot á notendareglum og skilmálum
Hafi félagið rökstuddan grun um að notandi hafi brotið gegn skilmálum þessum áskilur félagið sér rétt til þess að grípa til þeirra úrræða sem lög, reglur og skilmálar þessir heimila, þ.m.t loka fyrir aðgang tiltekins netfangs og eða notanda að vefsíðunni, án fyrirvara, tímabundið eða ótímabundið.
11. gr. Aðgangur að svæðum sem vernduð eru með lykilorði
Notendur samkvæmt skilmálum þessum skulu auðkenna sig með netfangi og lykilorði, sem þeim hefur verið úthlutað eða þeir sjálfir valið, við innskráningu inn í www.hafit.is.
Aðgangur að svæðum á vefsíðunni sem vernduð eru með lykilorði er einungis heimill þeim sem fengið hafa úthlutað lykilorði til aðgangs að vefsíðunni, það sama á við um alla notkun aðgangsins. Aðgangur hvers og eins notanda er persónulegur og er notendum með öllu óheimilt að láta öðrum aðilum aðganginn í té eða veita öðrum nokkurs konar heimild til þess að hagnýta sér með hvers konar hætti aðgang þeirra að www.hafit.is og þau gögn og upplýsingar sem þar er að finna. Brjóti notendur gegn þessu banni mun Háfit ehf. gera notanda viðvart og loka fyrir aðgang þeirra notenda, eftir atvikum að undangenginni áminningu, án þess að það hafi áhrif á greiðsluskyldu notanda fyrir aðgang sinn.
Notandi ber fulla ábyrgð á öllum þeim aðgerðum sem framkvæmdar eru með hans aðgangi og lykilorði hvort sem þær eru framkvæmdar af honum sjálfum eða öðrum og hvort sem það er með leyfi hans eða ekki.
Misnotkun á aðgangi eða lykilorði notanda er aldrei á ábyrgð félagsins og ber notanda að halda félaginu skaðlausu af hvers kyns misnotkun.
12. gr. Almennar reglur um notkun
Notendur hafa leyfi til að nýta sér vefkerfið og þá þjónustu sem þar er í boði í samræmi við skilmála þessa.
Notendur fá aðgang að því efni á www.hafit.is sem til boða stendur á hverjum tíma og ekki er háð höfundarréttarvernd af hvers konar tagi.
Notendur öðlast ekki eignarrétt af nokkru tagi, beinan eða óbeinan, yfir því efni sem finna má á vefsíðunni heldur er eingöngu um um afnotarétt á viðkomandi efni að ræða. Umfang þessa afnotaréttar fer eftir skilmálum þessum.
Gögn og upplýsingar á www.hafit.is eru eign Háfit ehf., nema annað sé tekið fram á www.hafit.is eða almennum notendaskilmálum á hverjum tíma. Réttur til notkunar gagna og upplýsinga sem fengnar eru á www.hafit.is takmarkast af ákvæðum viðkomandi samnings, notendaskilmálum vefsíðunnar, lögum og stjórnvaldsfyrirmælum. Réttur notenda til notkunar gagna og upplýsinga fellur niður um leið og samningur fellur úr gildi.
Notendum er óheimilt að nota gögn og upplýsingar á www.hafit.is til hvers konar útgáfu eða endurmiðlunar. Notendum er þó heimilt að prenta út gögn og upplýsingar til hefðbundinnar notkunar á slíkum gögnum og upplýsingum.
Notendum er óheimilt að að breyta eða afbaka þær upplýsingar sem finna má á vefsíðunni og/eða að dreifa þeim í breyttri mynd. Notendum er óheimilt að nota efni vefsíðunnar með nokkrum þeim hætti sem falið getur í sér skerðingu á heiðri eða sérkenni höfunda efnisins eða félagsins. Notkun vefkerfisins má ekki undir nokkrum kringumstæðum vera skaðleg rekstri félagsins eða leiða af sér tjón fyrir aðra notendur vefkerfisins. Ekki má nýta vefkerfið í samkeppnistilgangi gegn félaginu.
Fyrir aðra notkun á vefkerfinu en þá sem heimiluð er í skilmálum þessum þarf sérstakt, skriflegt leyfi félagsins, eiganda höfundaréttar og eftir atvikum annarra sem kunna að eiga höfundarétt að efni vefsíðunnar að hluta til eða í heild.
Gjaldskrá verður að finna á vef félagsins.
Mánaðarleg áskriftar- og þjónustugjöld eru gjaldfærð um hver mánaðarmót. Eindagi er tíunda hvers mánaðar. Mánaðargjald hvers notanda fyrir sig er háð breytingum á vísitölu neysluverðs, útgefinni af Hagstofu Íslands uppfærist það 1. janúar ár hvert. Athugasemdir við reikninga skulu berast eigi síðar en 14 dögum eftir bókunardag að öðrum kosti telst reikningurinn samþykktur. Sé reikningur ekki greiddur á tilsettum tíma áskilur Háfit ehf. sér rétt til að loka fyrir viðkomandi aðgang án fyrirvara.
Notanda er það ljóst að mánaðargjald fyrir aðgang kann að breytast í samræmi við almennar breytingar á verðskrá og afsláttarkerfi, t.d þegar nýjum þjónustuþáttum og/eða notkunarmöguleikum er bætt við kerfið. Háfit ehf. skuldbindur sig til þess að kynna notendum slíkar breytingar með a.m.k 1 mánaðar fyrirvara.